Samstarfsverkefni sveitarfélaga

Menntatækni á öruggum grunni - saman

Öruggara nám er samstarfsverkefni sem styður kennslufræðinga, lögfræðinga, kerfisstjóra og tæknifólk í sveitarfélögum með greiningu á stafrænum kennslulausnum, í samræmi við persónuverndarlög, og sameiginlegum vettvangi til að deila þekkingu.

Vandinn sem við leysum

Þú ert líklega að leysa þetta einn - eins og allir aðrir

Kennslufræðingar, lögfræðingar, kerfisstjórar og tæknifólk í íslenskum sveitarfélögum rekast oft á sömu vandamálin. Hvernig stendur þessi kennslulausn gagnvart persónuvernd? Er löglegt að nota hana með nemendum? Breyttist eitthvað í uppfærslunni?

Við þessum spurningum fást ekki alltaf skýr svör. Og þar sem sveitarfélögin vinna að mestu leyti hvert í sínu horni, er sama vinnan oft endurtekin hjá hverjum og einum.

„Við vissum ekki hvort við mættum nota þessa kennslulausn - svo við prófuðum bara og vonuðum það besta.“

Engin skipulögð greining á nýjum kennslulausnum

Þegar skólar skoða nýjar kennslulausnir er öryggi og lögmæti oft metið of seint - eða alls ekki.

Lög og reglur breytast - án viðvörunar

Persónuverndarlög og kröfur til gagnavinnslu þróast stöðugt. Sveitarfélög komast oft of seint að breytingum og með óheppilegum hætti.

Uppfærslur í kennslulausnum sem eru þegar í notkun

Erfitt er að fylgjast kerfisbundið með því hvort kennslulausnir sem eru í notkun hafi breyst - í skilmálum, öryggi eða virkni.

Takmarkaðar leiðir til að leita aðstoðar

Fáar skipulagðar leiðir eru til að fá aðstoð frá öðrum í sömu stöðu eða deila reynslu þvert á sveitarfélög.

Þjónustan

Hvaða þjónustu bjóðum við?

Öruggara nám sér um þá vinnu sem sveitarfélög hafa oft ekki tíma, sérþekkingu eða mannafla til að sinna - og skilar skýrum og nothæfum niðurstöðum.

  • Greiningar á kennslulausnum

    Áhættumat á lausnum með tilliti til persónuverndarlaga og GDPR: hvar gögn eru geymd, hverjir fá aðgang að þeim, hvort vinnslusamningur liggi fyrir og hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt. Hver greining tilgreinir hvaða útgáfa var skoðuð á hverju tæki. Að lágmarki fimm greiningar á mánuði.

  • Ítargreiningar

    Dýpri skoðun á einstökum eiginleikum lausna eða stærri kerfum, eftir atvikum með mati á áhrifum á persónuvernd (MÁP) og mati á flutningi gagna út fyrir EES (TIA).

  • Skýrslur og leiðbeiningar

    Leiðbeiningar um þætti sem snerta margar lausnir í einu, til dæmis innskráningu nemenda með skólaaðgangi Google eða Microsoft. Hluti leiðbeininganna er opinn öllum.

  • Uppfærsluvöktun

    Greiningar eru endurskoðaðar þegar nýjar útgáfur koma út eða skilmálar breytast. Uppfærðar greiningar eru sérstaklega merktar, með lýsingu á því hvað breyttist.

  • Regluverksvöktun og fréttabréf

    Við fylgjumst með breytingum á lögum, leiðbeiningum persónuverndarstofnana og kerfisbreytingum stórra framleiðenda, og segjum áskrifendum frá því sem skiptir máli í reglulegu fréttabréfi.

  • Torgið - áskrifendagátt

    Lokuð gátt með öllum greiningum, leit og síum, beiðnaformi, umræðusvæði, viðburðum og tilkynningum um nýjar og uppfærðar greiningar. Spurningum áskrifenda er svarað á umræðusvæðinu eða í tölvupósti.

  • Fræðsla

    Kynningar fyrir starfsfólk um greiningarnar og persónuvernd í skólastarfi. Áskrifendur geta stungið upp á efni og kosið um það sem tekið er fyrir, og upptökur eru aðgengilegar á Torginu.

Verðlag: Verð er fast og byggt á stærð sveitarfélagsins. Hafðu samband til að fá upplýsingar um það verð sem á við hjá ykkur.

Frá greiningu til ákvörðunar

Verkfæri fyrir sveitarfélögin

Greining er aðeins fyrsta skrefið. Sveitarfélög þurfa líka að taka ákvörðun og koma henni til skila til skólanna.

Á Torginu geta sveitarfélög:

skráð eigin ákvörðun um hverja lausn: heimilað, heimilað með skilyrðum, ekki heimilað eða í skoðun, ásamt eigin skilyrðum og tenglum á leiðbeiningar;

birt opinn lista yfir heimilaðar lausnir sem starfsfólk, nemendur og forráðamenn geta skoðað án innskráningar;

stillt hvaða hluta Torgsins starfsfólk þeirra sér.

Greiningar og önnur gögn á Torginu eru aðgengileg öllum áskrifendum. Sveitarfélag getur þó valið að stilla sitt svæði þannig að það sjái aðeins eigin ákvarðanir. Þessi virkni er nú í prófun.

Samfélag fagfólks

Þú ert ekki ein(n) í þessu

Kennslufræðingar, lögfræðingar, kerfisstjórar og tæknifólk í íslenskum sveitarfélögum glíma oft við sömu vandamálin. Öruggara nám skapar sameiginlegan vettvang þar sem þetta fólk getur rætt saman, deilt reynslu og lært hvert af öðru.

  • Sameiginlegt skjalasafnAllar greiningar eru aðgengilegar öllum áskrifendum, svo enginn þarf að byrja frá grunni.
  • KennslulausnaráðReglulegir samráðsfundir áskrifenda um hvernig lausnir eru yfirfarnar eftir greiningu og hvernig þær komast í samþykkt og dreifingu í hverju sveitarfélagi. Fundirnir eru teknir upp og fundargerðir birtar á Torginu.
  • UmræðusvæðiVettvangur á Torginu fyrir spurningar, reynslu og sjónarmið milli sveitarfélaga.
  • Vettvangur fyrir lögfræðingaLögfræðingar sveitarfélaganna sem sinna persónuverndarmálum fá sérstakan vettvang til samvinnu - til að deila reynslu, samræma túlkanir og styðja hvert annað.
  • Sameiginlegar tilkynningarÁskrifendur fá samtímis upplýsingar um breytingar á lögum, lausnum eða skilmálum.

Hvernig virkar þetta

Einföld og skýr þátttaka

Við höfum þróað einfalda leið til að sveitarfélög geti farið úr spurningum yfir í niðurstöður - án þess að þurfa að leggja í mikla vinnu sjálf.

  1. Sendið inn beiðni

    Nóg er að skrá heiti lausnarinnar á Torginu. Þau sem vilja geta bætt við upplýsingum um tilgang, notendur, tæki og umfang, sem hjálpar okkur að forgangsraða.

  2. Greining

    Við förum yfir persónuverndarstefnu, vinnslusamning, hýsingu gagna, undirvinnsluaðila og virkni lausnarinnar á þeim tækjum sem skólarnir nota. Liggi greining þegar fyrir er hún aðgengileg strax.

  3. Áhættuflokkur og tillögur að skilyrðum

    Lausnin fær áhættuflokk frá A (mest áhætta) til D (minnst áhætta) og settar eru fram tillögur að skilyrðum fyrir notkun, með rökstuðningi. Þar sem við á bendum við á öruggari valkosti sem sinna sömu þörf.

  4. Ákvörðunin er sveitarfélagsins

    Sveitarfélagið tekur sjálft ákvörðun um hvort lausnin er heimiluð, á grundvelli greiningarinnar. Greiningin fer í sameiginlegt skjalasafn og nýtist öllum áskrifendum.

Þróun þjónustunnar

Í stöðugri þróun

Öruggara nám hefur vaxið hratt frá því þjónustan fór af stað. Skjalasafnið telur nú tugi greininga, auk skýrslna, leiðbeininga og sniðmáta, og nýjar greiningar bætast reglulega við. Þjónustan hefur færst úr sameiginlegu SharePoint-svæði yfir á Torgið, sérsmíðaða áskrifendagátt, og hefur þróast í takt við óskir sveitarfélaganna: frá stökum greiningum yfir í ítargreiningar, leiðbeiningar, samráðsfundi og verkfæri sem styðja sveitarfélögin við eigin ákvarðanir. Ábendingar áskrifenda ráða miklu um hvað kemur næst.

Hafa samband

Áhugasöm? Við viljum heyra frá þér

Við erum að kynna þetta til sögunnar fyrir sveitarfélög um allt land. Hafðu samband ef þú vilt fá frekari upplýsingar eða ræða mögulega þátttöku.

Senda fyrirspurn

Markhópur

Íslensk sveitarfélög

Rekstraraðili

ION Ráðgjöf

Þátttaka

Opin fyrir umsóknir